Um Lífsmark
Lífsmark - Hugur & heilsa var stofnað af Írisi Huld Guðmundsdóttur árið 2015 með það að leiðarljósi að bjóða upp á heildræna þjálfun fyrir einstaklinga og hópa sem vilja taka skref í átt að bættri andlegri og líkamlegri heilsu.
Þjónusta Lífsmarks felur í sér
- Sigrum streituna - einstaklingstíma
-Sigrum streituna - netnámskeið
- Sigrum streituna 4 vikna námskeið hjá Primal Iceland
- Heilsumarkþjálfun
- Einkaþjálfun/hópþjálfun - þjálfun sniðna að þínum þörfum
Sigrum streituna einkatímar
Eru árangursríkir einkatímar fyrir alla þá sem vilja komast út úr vítahring streitunnar, bæta andlega og líkamlega heilsu sína og endurheimta orkuna á ný.
Í einkatímunum er kennd öndunartækni sem dregur úr streitu og kvíða auk liðleika- og teygjuæfinga sem stuðla að aukinni hreyfigetu og vellíðunar í stoðkerfi.
Íris Huld hefur leitt Sigrum streituna, 4 vikna námskeið hjá Primal Iceland með afar góðum árangri en einkatímarnir eru hugsaðir fyrir þá sem vilja persónulegri þjálfun á tíma sem hentar hverjum og einum.
Heilsumarkþjálfun
Náðu auknum árangri með Heilsumarkþjálfun Lífsmarks.
Heilsumarkþjálfun er einstaklingsmiðuð þjálfun þar sem þú ert við stjónvölinn.
Hámarkaðu lífsgæði þín og komdu hlutum í verk sem setið hafa á hakanum. Hvort sem þú þarft að draga úr streituvöldum, bæta svefn, næringu, samskipti eða finna tíma fyrir þig í hröðum nútíma lífsstíl.
Gefðu þér tíma fyrir það sem skiptir þig máli og hafðu aukið heilbrigði og hamingju að leiðarljósi.