Okkur hjónunum bauðst á dögunum að kíkja við í hlaðvarpið hjá Líkami.is.
Við hittum Björn Þór þjálfara og áttum við hann gott spjall m.a. um Sigrum streituna, öndun og starf okkar hjá Primal Iceland.
“Viðmælendur þáttarins eru hjónin Íris Huld Guðmundsdóttir íþróttafræðingur og markþjálfi og Einar Carl Axelson eiganda Primal Iceland. Ég fékk þau til mín í viðtal eftir að hafa lengi fylgst með þeirra flottu vinnu sem þau hafa unnið og vinna. Í þættinum segir Íris frá upphafi Sigrum streituna námskeiðsins sem er mjög vinsælt, og Einar Carl talar um hugmyndafræði Primal, sögu þess og gefur parktísk ráð við þjálfun. Þau bæði eru mjög áhugaverðir einstaklingar sem athyglisvert er að fylgjast með.”
Kíkið á þetta og fylgist með okkur á samfélagsmiðlum :)
Comments